-
Markets
-
Equities
Sustainable finance2025 Euronext ESG Trends ReportRead moreA data-driven snapshot of how Euronext-listed companies are advancing their Environmental, Social and Governance (ESG) practices.
-
Indices
Access the white paperInvesting in the future of Europe with innovative indicesRead moreThe first edition of the Euronext Index Outlook series with a particular focus on the European Strategic Autonomy Index.
-
ETFs
The European market place for ETFsEuronext ETF EuropeRead moreInvestors benefit from a centralised market place that will not only bring transparency but also better pricing due to the grouping of liquidity.
- Funds
-
Fixed Income
European Defence BondsGroupe BPCE lists the first bondRead moreFirst financial institution in Europe to issue a bond dedicated to the defence sector
- Structured Products
-
Derivatives
Where European Government Bonds Meet the FutureFixed Income derivativesRead moreTrade mini bond futures on main European government bonds
-
Commodities
- Overview
- Quotes snapshot
- Power Derivatives
- Milling Wheat derivatives
- Corn derivatives
- Spread contracts
- Rapeseed derivatives
- Durum Wheat derivatives
- Salmon derivatives
- Delivery & settlement
- Specifications & arrangements
- Commitments of Traders (CoT) report
- Commodity brokers
Building a sustainable and liquid power derivatives market.Euronext Nord Pool Power FuturesRead moreEuronext and Nord Pool, the European power exchange, announced the launch of a dedicated Nordic and Baltic power futures market.
-
Resources
Designed to help students navigate the complexities of financial marketsEuronext Trading gameRead moreJoin the Euronext Trading Game and step into capital markets. Learn from today’s leaders, explore sustainable opportunities, and trade with confidence.
Marel: JBT tilkynnir um samþykki yfir 90% hluthafa Marel á valkvæðu yfirtökutilboði JBT
20 Dec 2024 13:22 CET
Issuer
MAREL HF.
Valfrjálst yfirtökutilboð John Bean Technologies Corporation („JBT”) í öll útgefin og útistandandi hlutabréf í Marel hf. rann út kl. 12:00 á hádegi í dag, 20. desember 2024.
Samkvæmt tilkynningu JBT hafa öll skilyrði tilboðsins nú verið uppfyllt, þar með talið samþykki hluthafa Marel sem eiga yfir 90% af útgefnum og útistandandi hlutum í félaginu. Gert er ráð fyrir að JBT muni birta frekari upplýsingar um niðurstöður yfirtökutilboðsins innan tíðar með tilkynningu til bandaríska verðbréfaeftirlitsins (US Securities and Exchange Commission). Þar sem öll skilyrði tilboðsins hafa verið uppfyllt tekur nú við undirbúningur uppgjörs þar sem gengið verður frá viðskiptunum í samræmi við skilmála þess.
Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:
„Dagurinn í dag markar spennandi tímamót í sameiningarvegferð þessara tveggja frábæru fyrirtækja, Marel og JBT. Stuðningur hluthafa Marel, sem endurspeglast í yfir 90% samþykkishlutfalli, undirstrikar sterka sannfæringu fyrir því hversu vel félögin passa saman og þeim miklu sóknarfærum sem JBT Marel mun búa yfir.
Ég vil færa hluthöfum okkar einlægar þakkir fyrir mikinn stuðning í gegnum árin og ég er þess fullviss að sameinað félag mun halda áfram að byggja á arfleifð Marel eins og við höfum gert síðustu 40 ár. Ég er jafnframt mjög spenntur fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér fyrir starfsfólk okkar, viðskiptavini og hluthafa. Við munum byggja á því besta sem bæði fyrirtækin hafa fram að færa og ná árangri sem hvorugt félag hefði náð hvort í sínu lagi. Saman munum við skapa betri, sterkari og sjálfbærari alþjóðlega virðiskeðju matvæla.“
Uppgjör tilboðsins fer fram þann 2. janúar 2025
Gert er ráð fyrir að endanlegt uppgjör tilboðsins muni fara fram þann 2. janúar 2025. Þeir hluthafar Marel sem hafa með löglegum hætti samþykkt tilboðið munu fá sem endurgjald fyrir hvern hlut í Marel annað hvort reiðufé, hluti í JBT eða blöndu af reiðufé og hluti í JBT, og er endurgjaldið háð hlutföllun í samræmi við skilmála tilboðsins.
JBT stefnir að innlausn eftirstandandi hlutafjár í Marel sem ekki var selt í yfirtökutilboðsferlinu og mun óska eftir afskráningu á hlutabréfum Marel hjá Nasdaq Iceland og Euronext Amsterdam eins fljótt og auðið er í samræmi við reglur sem um það gilda. Þar sem eignarhlutur JBT á hlutafé í Marel verður yfir 90% þegar uppgjöri lýkur, mun JBT óska eftir innlausn eftirstandandi hlutafjár í samræmi við ákvæði 110. gr. laga nr. 108/2008 um yfirtökur, innan þriggja mánaða frá uppgjöri tilboðsins.
Tvískráning hlutabréfa JBT Marel á Nasdaq Iceland þann 3. janúar 2025
Samhliða kaupum JBT á Marel, verður nafni JBT og kauphallarauðkenni breytt í „JBT Marel Corporation“ og „JBTM“ til styttingar. Hlutabréf JBTM verða áfram skráð á New York Stock Exchange (NYSE) og tvískráð á Nasdaq Iceland, en samþykki Nasdaq Iceland á skráningu félagsins á markað liggur þegar fyrir. Gert er ráð fyrir að hlutabréf JBTM muni verði tekin til viðskipta á bæði NYSE og Nasdaq Iceland þann 3. janúar 2025.
Spurningar hluthafa um tilboðsferlið
Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð hjá Nasdaq Iceland hf. geta haft samband við Arion banka hf. með spurningar í tengslum við samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins á netfangið assistance.marel2024@arionbanki.is.
Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð á Euronext Amsterdam skulu hafa samband við sinn vörsluaðila til þess að nálgast upplýsingar um samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins. Vörsluaðilar og hluthafar geta haft samband við ABN AMRO Bank N.V. með spurningar á netfangið corporate.broking@nl.abnamro.com.
Fjármálaráðgjafar Marel vegna yfirtökutilboðsins eru J.P. Morgan auk þess sem Rabobank veitti stjórn félagsins sjálfstætt álit varðandi sanngirni á greiðslu til hluthafa í yfirtökutilboðinu. Lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie (Bandaríkin), BBA/Fjeldco (Ísland), og Osborne Clarke (Holland).
Source
Marel
Provider
Modular Finance
Company Name
MAREL
ISIN
IS0000000388
Symbol
MAREL
Market
Euronext