-
Markets
-
Equities
Sustainable finance2025 Euronext ESG Trends ReportRead moreA data-driven snapshot of how Euronext-listed companies are advancing their Environmental, Social and Governance (ESG) practices.
-
Indices
Access the white paperInvesting in the future of Europe with innovative indicesRead moreThe first edition of the Euronext Index Outlook series with a particular focus on the European Strategic Autonomy Index.
-
ETFs
The European market place for ETFsEuronext ETF EuropeRead moreInvestors benefit from a centralised market place that will not only bring transparency but also better pricing due to the grouping of liquidity.
- Funds
-
Fixed Income
European Defence BondsGroupe BPCE lists the first bondRead moreFirst financial institution in Europe to issue a bond dedicated to the defence sector
- Structured Products
-
Derivatives
Where European Government Bonds Meet the FutureFixed Income derivativesRead moreTrade mini bond futures on main European government bonds
-
Commodities
- Overview
- Quotes snapshot
- Power Derivatives
- Milling Wheat derivatives
- Corn derivatives
- Spread contracts
- Rapeseed derivatives
- Durum Wheat derivatives
- Salmon derivatives
- Delivery & settlement
- Specifications & arrangements
- Commitments of Traders (CoT) report
- Commodity brokers
Building a sustainable and liquid power derivatives market.Euronext Nord Pool Power FuturesRead moreEuronext and Nord Pool, the European power exchange, announced the launch of a dedicated Nordic and Baltic power futures market.
-
Resources
Designed to help students navigate the complexities of financial marketsEuronext Trading gameRead moreJoin the Euronext Trading Game and step into capital markets. Learn from today’s leaders, explore sustainable opportunities, and trade with confidence.
Marel: JBT tilkynnir um samþykki eftirlitsaðila vegna valfrjáls yfirtökutilboðs og breytingar á uppgjörstímabili
27 Nov 2024 19:40 CET
Issuer
MAREL HF.
Þann 24. júní 2024 lagði John Bean Technologies Corporation (“JBT” eða “tilboðsgjafinn”) fram valfrjálst yfirtökutilboð til hluthafa Marel hf., í samræmi við lög nr. 108/2007 um yfirtökur, á grundvelli skilmála sem settir voru fram í tilboðsyfirliti, dagsettu sama dag, (“tilboðsyfirlitið” eða “tilboðið”) sem samþykkt var af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
JBT tilkynnir um að samþykki allra hlutaðeigandi eftirlitsyfirvalda liggi fyrir
JBT tilkynnti í dag um að félaginu hafi borist samþykki frá öllum hlutaðeigandi eftirlitsyfirvöldum vegna fyrirhugaðrar yfirtöku á Marel hf. Þann 26. nóvember 2024 tók framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvörðun um að samþykkja fyrirhugaðan samruna. Að auki barst JBT formleg staðfesting frá áströlskum samkeppnisyfirvöldum þess efnis að engar athugasemdir væru gerðar við fyrirhugaðan samruna þann 22. nóvember 2024.
Uppgjörstímabil tilboðsins lengt í fimm daga og tilboðstímabilið mun renna út kl. 12:00 á hádegi 20. desember 2024
JBT hefur ákveðið að (i) breyta uppgjörstímabili tilboðsins þannig að uppgjör tilboðsins fari fram eigi síðar en fimm viðskiptadögum eftir lok gildistíma tilboðsins, í stað þriggja viðskiptadaga, og (ii) breyta gildistíma tilboðsins þannig að tilboðinu ljúki kl. 12:00 á hádegi á íslenskum tíma þann 20. desember 2024 í stað kl. 17:00 á íslenskum tíma sama dag. Tilgangur breytinganna er að framlengja uppgjörstímabil tilboðsins til að tryggja öruggt og snurðulaust uppgjör til þeirra hluthafa sem samþykkja tilboðið.
Áætlað er að uppgjöri viðskiptanna muni ljúka eigi síðar en 3. janúar 2025, að teknu tilliti til lögbundinna frídaga í kringum jól og áramót.
Tilboðsgjafi hefur birt viðauka við tilboðsyfirlitið með framangreindum breytingum, sem nálgast má á vefsíðu JBT (ir.jbtc.com), sem og á vefsíðum Marel (marel.com/jbt) og Arion banka hf. (arionbanki.is).
Jákvætt álit stjórnar Marel óbreytt
Stjórn Marel hf. ber að birta viðbót við greinargerð sína frá 24. júní 2024 í tengslum við breytingar á tilboðinu, til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um yfirtökur.
Stjórn Marel hf. hefur yfirfarið viðaukann og metið tilgang breytinga á tilboðinu og komist að þeirri niðurstöðu að þær breyti ekki þeim rökum sem lágu til grundvallar jákvæðu áliti stjórnar hvað varðar tilboðið.
Með tilvísun til greinargerðar stjórnar varðandi tilboðið, er það áfram samhljóða álit stjórnar Marel hf. að (i) styðja tilboðið, þar með talið tilboðsverðið og aðra skilmála þess, (ii) mæla með því að hluthafar Marel samþykki tilboðið, og (iii) fyrirhuguð sameining félaganna hafi jákvæð áhrif er varðar hagsmuni Marel og starfsmanna félagsins.
Frekari upplýsingar og öll skjöl varðandi valfrjálst yfirtökutilboð JBT má finna hér.
Spurningar hluthafa um tilboðsferlið
Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð hjá Nasdaq Iceland hf. geta haft samband við Arion banka hf. með spurningar í tengslum við samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins á netfangið assistance.marel2024@arionbanki.is.
Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð á Euronext Amsterdam skulu hafa samband við sinn vörsluaðila til þess að nálgast upplýsingar um samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins. Vörsluaðilar og hluthafar geta haft samband við ABN AMRO Bank N.V. með spurningar á netfangið corporate.broking@nl.abnamro.com.
Marel hefur ráðið J.P. Morgan sem fjármálaráðgjafa og jafnframt fengið Rabobank til að gefa stjórn félagsins sjálfstætt álit varðandi sanngirni á greiðslu til hluthafa í fyrirhuguðu yfirtökutilboði. Lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie (Bandaríkin), BBA/Fjeldco (Ísland), og Osborne Clarke (Holland).
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veitir Tinna Molphy, fjárfestatengill Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.
Source
Marel
Provider
Modular Finance
Company Name
MAREL
ISIN
IS0000000388
Symbol
MAREL
Market
Euronext