-
Markets
-
Equities
Sustainable finance2025 Euronext ESG Trends ReportRead moreA data-driven snapshot of how Euronext-listed companies are advancing their Environmental, Social and Governance (ESG) practices.
-
Indices
Access the white paperInvesting in the future of Europe with innovative indicesRead moreThe first edition of the Euronext Index Outlook series with a particular focus on the European Strategic Autonomy Index.
-
ETFs
The European market place for ETFsEuronext ETF EuropeRead moreInvestors benefit from a centralised market place that will not only bring transparency but also better pricing due to the grouping of liquidity.
- Funds
-
Fixed Income
European Defence BondsGroupe BPCE lists the first bondRead moreFirst financial institution in Europe to issue a bond dedicated to the defence sector
- Structured Products
-
Derivatives
Where European Government Bonds Meet the FutureFixed Income derivativesRead moreTrade mini bond futures on main European government bonds
-
Commodities
- Overview
- Quotes snapshot
- Power Derivatives
- Milling Wheat derivatives
- Corn derivatives
- Spread contracts
- Rapeseed derivatives
- Durum Wheat derivatives
- Salmon derivatives
- Delivery & settlement
- Specifications & arrangements
- Commitments of Traders (CoT) report
- Commodity brokers
Building a sustainable and liquid power derivatives market.Euronext Nord Pool Power FuturesRead moreEuronext and Nord Pool, the European power exchange, announced the launch of a dedicated Nordic and Baltic power futures market.
-
Resources
Designed to help students navigate the complexities of financial marketsEuronext Trading gameRead moreJoin the Euronext Trading Game and step into capital markets. Learn from today’s leaders, explore sustainable opportunities, and trade with confidence.
Marel: Uppgjör 2F 2024
24 Jul 2024 18:00 CEST
Issuer
MAREL HF.
Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2024 (allar upphæðir eru í evrum)
Meginatriði
- EBIT framlegð var 9,1% á öðrum ársfjórðungi sem er hækkun frá síðasta ársfjórðungi og á milli ára.
- Mótteknar pantanir voru lágar, hlutfall pantana á móti tekjum (e. book-to-bill) var 0,95 og pantanabók samsvarar 32% af tekjum síðustu tólf mánaða.
- Búist er við aukningu í mótteknum pöntunum á síðari árshelmingi sem byggist á batnandi horfum og batamerkjum í rekstrarumhverfi viðskiptavina. Þörf er á frekari vexti pantanabókar til að styðja við tekjuvöxt og bætta rekstrarafkomu.
- Áframhaldandi áhersla á að lækka kostnaðargrunn með aðhaldi í kostnaði og bætta skilvirkni í framleiðslu og starfsmannahaldi.
- Skuldahlutfall hækkaði í 3,9x, aðallega vegna óhagstæðrar þróunar hreinna veltufjármuna. Skuldahlutfallið er vel innan marka samkvæmt lánaskilmálum sem var 4,5x að hámarki á öðrum ársfjórðungi.
- Horfur félagsins fyrir árið 2024 hafa verið uppfærðar og er nú reiknað með hóflegum (e. low single digit) samdrætti tekna á árinu, að EBITDA verði á bilinu 13-14% og EBIT verði á bilinu 9-10%.
Helstu atriði í afkomu á öðrum ársfjórðungi 2024 (2F24)
- Pantanir námu 393,4 milljónum evra (1F24: 392,8m, 2F23: 406,5m).
- Pantanabókin stóð í 538,5 milljónum evra (1F24: 560,3m, 2F23: 574,5m).
- Tekjur voru 415,2 milljónir evra (1F24: 412,6m, 2F23: 422,4m).
- Hlutfall pantana á móti tekjum (e. Book-to-bill) var 0,95 og hlutfall pantanabókar samsvaraði 32% af tekjum síðustu tólf mánaða.
- EBITDA[1] nam 53,8 milljónum evra (1F24: 48,1m, 2F23: 49,9m) sem var 13,0% af tekjum (1F24: 11,7%, 2F23: 11,8%).
- EBIT[1] nam 37,7 milljónum evra (1F24: 32,8m, 2F23: 33,8m) sem var 9,1% af tekjum (1F24: 7,9%, 2F23: 8,0%).
- Hagnaður nam 2,1 milljónum evra (1F24: -3,2m, 2F23: 3,1m).
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta var -4,0 milljónir evra (1F24: 26,2m, 2F23: 27,1m).
- Frjálst sjóðstreymi var -22,0 milljónir evra (1F24: 11,2m, 2F23: -6,1m).
- Skuldahlutfall[2] (nettó skuldir/EBITDA) var 3,9x í lok júní (1F24: 3,8x, 2F23: 3,4x).
Helstu atriði á afkomu á fyrri helmingi ársins 2024 (1H24):
- Pantanir námu 786,2 milljónum evra (1H23: 769,1m).
- Tekjur voru 827,8 milljónir evra (1H23: 869,8m).
- EBITDA[1] nam 101,9 milljónum evra (1H23: 106,4m) sem var 12,3% af tekjum tímabilsins (1H23: 12,2%).
- EBIT[1] nam 70,5 milljónum evra (1H23: 74,0m) sem var 8,5% af tekjum tímabilsins (1H23: 8,5%).
- Tap nam 1,1 milljón evra á tímabilinu (Hagnaður 1H23: 12,2m).
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta var 22,2 milljónir evra (1H23: 61,4m).
- Frjálst sjóðstreymi var -10,8 milljónir evra (1H23: -6,4m).
[1] Rekstrarniðurstaða og EBITDA aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum tengdum yfirtökum (PPA), kostnaði tengdum yfirtökum og einskiptiskostnaði vegna endurskipulagningar. Á fjórða ársfjórðungi 2023 og fyrsta ársfjórðungi 2024 er rekstrarniðurstaða jafnframt leiðrétt fyrir kostnaði tengdum endurskipulagningu á vöruframboði félagsins.
[2] Nettó skuldir (án leiguskuldbindinga) / Pro forma leiðrétt EBITDA síðustu 12 mánaða (að yfirteknum félögum meðtöldum) án óreglulegra liða samkvæmt lánasamningum Marel.
Finna má ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar sem finna má í viðhengi (íslenska útgáfan veitir aðeins stutt yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).
Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:
„Það er ánægjulegt að sjá bætta rekstrarframlegð á milli ársfjórðunga í kjölfar þeirra aðgerða sem við höfum farið í til að bæta reksturinn. Rekstrarumhverfið er áfram krefjandi og litað af óvissu sem endurspeglast í lægri mótteknum pöntunum. Við erum hins vegar viss um að rekstrarskilyrði viðskiptavina okkar fari batnandi sem muni skila sér í auknum pöntunum á seinni helmingi ársins, sérstaklega undir lok þessa árs og inn á það næsta. Í ljósi þess hve fyrri hluti árs fer rólega af stað gerum við nú ráð fyrir hóflegum samdrætti tekna á yfirstandandi rekstrarári og að EBITDA framlegð ársins verði 13-14% og EBIT framlegð 9-10%. Til lengri tíma litið og eftir því sem horfur fara batnandi, er ég sannfærður um að leiðandi staða Marel á þeim vaxtarmörkuðum sem félagið starfar og skýr stefna félagsins muni tryggja að markmið okkar til meðallangs tíma náist.
Samhliða daglegum rekstri hefur margt mikilvægt gerst á fjórðungnum í tengslum við mögulega sameiningu við JBT en undir lok júní lagði JBT fram valfrjálst yfirtökutilboð í alla hluti í Marel. Við væntum þess að viðskiptin gangi í gegn fyrir lok árs og horfum björtum augum á sameiningu félaganna í því augnamiði að bæta þjónustu við viðskiptavini með hagsmuni allra haghafa að leiðarljósi. Ég vil þakka hinu frábæra starfsfólki Marel um allan heim fyrir sitt mikilvæga starf og áræðni í síbreytilegu rekstrarumhverfi. Saman vinnum við ótrauð áfram að markmiðum okkar og þeirri framtíðarsýn að umbylta matvælavinnslu á heimsvísu.“
Áframhaldandi óvissa til skemmri tíma, uppfærðar horfur fyrir rekstrarárið 2024
Markaðsaðstæður eru áfram krefjandi í ljósi spennu á alþjóðavettvangi, verðbólgu og hárra vaxta sem skapar áframhaldandi óvissu til skemmri tíma. Þetta endurspeglast í lægri mótteknum pöntunum á fyrri hluta árs sem voru undir væntingum.
Gert er ráð fyrir bata í mótteknum pöntunum á seinni helmingi ársins í ljósi betri horfa á markaði og rekstrarskilyrða viðskiptavina okkar, sérstaklega í alifuglaiðnaði. Til að ná fram vexti í tekjum og bættri afkomu þarf að byggja upp pantanabók félagsins.
Í ljósi þróunar á fyrri árshelmingi hefur Marel endurskoðað horfur sínar fyrir rekstrarárið 2024 og reiknar nú með hóflegum (e. low single digit) samdrætti í tekjum, að EBITDA framlegð ársins verði á bilinu 13-14% og EBIT framlegð verði á bilinu 9-10%.
Til meðallangs tíma litið eru horfur óbreyttar. Skortur á vinnuafli og hækkun launakostnaðar hjá viðskiptavinum okkar samhliða aukinni áherslu á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á sjálfbæran hátt, munu halda áfram að styðja við vaxtarhorfur félagsins til lengri tíma litið.
Afkomufundur með markaðsaðilum – beint streymi
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur í beinu streymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.
Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Skráning fer fram hér.
Fjárhagsdagatal
- 3F 2024 – 30. október 2024
- 4F 2024 – 12. febrúar 2025
- Aðalfundur – 26. mars 2025
e530718e-c26c-4db4-8223-f061817efa83_marel-q2-2024-condensed-consolidated-interim-financial-statements.pdf
e530718e-c26c-4db4-8223-f061817efa83_marel-q2-2024-press-release.pdf
Source
Marel
Provider
Modular Finance
Company Name
MAREL
ISIN
IS0000000388
Symbol
MAREL
Market
Euronext